Til baka
Hiti og kyrrð

Hvað er gusa?

Klukkustund til að hægja á sér. Hiti, ilmur og ferskt loft — og góð leiðsögn í gegnum það allt.

Stemningsmynd af timbursaunu við íslenska sjávarsíðu

Stemningsmynd, ekki ljósmynd af tilteknum stað.

Meira en gufubað

Gusa er leidd saunustund undir stjórn gusumeistara. Stundin tekur yfirleitt um eina klukkustund og skiptist í þrjár lotur, um 12–15 mínútur hver. Gusumeistarinn notar hita, ilmolíur, tónlist og handklæðasveiflur til að dreifa heitu loftinu um saununa.

01

Hiti og ilmur

Komdu þér fyrir og fylgdu leiðsögn gusumeistarans.

02

Kæling og andrými

Sjór, snjór eða ferskt loft á milli lota.

03

Þrjár rólegar lotur

Um 12–15 mínútur í senn, með kælingu á milli.

Í fyrsta skipti?

Komdu vel undirbúin eða undirbúinn og bókaðu fyrirfram.

Handklæði til að sitja á
Sundföt
Vatnsbrúsi
Bókaðu fyrirfram
Finndu næstu gusu