Sturta án sundfata
Þvoðu þér vel án sundfata áður en þú ferð í sundlaug og saunu. Þetta er skylda í íslenskum sundlaugum.
Reglur geta verið mismunandi eftir stöðum. Fylgdu alltaf merkingum og fyrirmælum starfsfólks á hverjum stað.
Þvoðu þér vel án sundfata áður en þú ferð í sundlaug og saunu. Þetta er skylda í íslenskum sundlaugum.
Komdu ekki rennandi blaut/ur inn í þurrgufu, það kælir og bleytir bekkina.
Sittu eða liggðu alltaf á handklæði svo sviti fari ekki á bekkina. Í mörgum saunum er það skylda.
Ekki setja ilmolíur, sápu eða annað á steinana nema starfsfólk eða gusumeistari leyfi það. Sterk lykt getur valdið óþægindum og ofnæmi hjá öðrum.
Þar sem gestir mega hella vatni á steinana er kurteisi að spyrja hina fyrst og hella litlu í einu.
Talaðu lágt og leyfðu öðrum að slaka á. Í gusum er þögn á meðan á lotunni stendur.
Myndatökur eru bannaðar í búningsklefum og saunum. Símar þola líka illa hitann.
Lokaðu hurðinni strax svo hitinn haldist, og víktu fyrir öðrum þegar margir bíða.
Snyrting á heima í búningsklefanum, ekki í saununni.
Skolaðu svitann af áður en þú ferð í kalda pottinn eða laugina.
Hæfilegt er 8–15 mínútur í senn. Farðu út ef þú finnur fyrir svima eða ógleði og drekktu vatn.
Börn eiga að vera í fylgd fullorðinna í saunu og víða gilda aldurstakmörk. Kannaðu reglur staðarins.